Mættur aftur.Sigurjón Ragnarsson

Svalur Jæja þá er nú ekki nema rúmt ár síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast þannig að mér datt í hug að henda nokkrum orðum hérna inn þar að segja ef fólk er ekki orðið dauðþreytt á þessu eilífa masi í mér. Hehe Glottandi
Þótt ótrúlegt megi virðast þá er nú bara lítið meira að frétta af mér heldur en það sem ég skrifaði hér síðast. Hehe (Sem segir mér nú það að ég ætti kannski að fara að reyna að eignast eitthvað smá líf.) Hlæjandi Jú einu get sagt frá og það er að ég fékk þetta fína skipspláss í Júní síðastliðnum á litlum 15 tonna plastbát sem er með beitningarvél og rær með línu, hann  heitir Bæildsey SH65 og er frá Stykkishólmi, en við erum búnir að róa frá Hofsósi í Skagafyrði í allt sumarog við erum bara búnir að fiska ágætlega. Það er aðeins einn galli á þessu öllu saman og hann er sá að það að vera á Hofsósi er ekkert ósvipað og að vera í fangelsi hehe því dauðara bæjarfélag hef ég aldrei séð hehe. Það er meira að segja svo drepleiðilegt þar að það voru jarðaðir 2 sama daginn fyrir stuttu. HeheHlæjandi Ja nema þeir séu svona hagsýnir hehe en það held ég ekki hehe.
En ég þarf nú sem betur fer ekki að kvíða því mjög lengi í viðbót að vera á Hofsósi því að við förum með bátinn vestur í Stykkishólm um leið og veður leyfir.Brosandi

Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, ég kem kannski aftur með eitthvað sprell áður en ég fer aftur á sjó eftir helgi. Svalur

Góðar stundir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Hvað á að snæða á Aðfangadag Jóla?

Gagnasafn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...